Naglinn er búin að vera með bullandi löngun í ostaköku í langan tíma núna. En þar sem eitt svoleiðis kvikindi er stútfullt af karólínum hefur það ekki verið í boði svona á hefðbundnum hversdegi.
Hvað gera bændur þá þegar löngunin ætlar holdið lifandi að éta? Jú, höfuðleðrið er lagt í maríneringu til að kokka upp holla útgáfu sem má gúlla á kvöldin yfir vikuna og átvaglið deyr af of stórum skammti af hamingju.
Þessi kombinasjón bragðaðist eins og litlar sneiðar af himnaríki, og það besta er að undirbúningurinn jaðrar við núllið og aðferðin passar 100% við letidýr eins og Naglann. Óþolinmæðismelurinn þarf samt að bíta á jaxlinn og bíða eftir að hún kólni nóg til átu.
Malaðar möndlur í botninum gáfu unaðslegt krönsj undir tönn sem gladdi áferðarperrann allverulega. Það er hægt að nota möndlumjöl líka en þá kemur ekki sami effekt.
Hindberja ostakaka
4 skammtar
Botninn:
100g NOW möndlumjöl
1 dl möndlumjólk
Fylling:
450g kotasæla
200 g kvark (eða hreint skyr)
4 eggjahvítur
1 msk NOW erythriol (Stevia/Sukrin)
NOW french vanilludropar
1 msk vanillu prótín (Naglinn notar Trutein) (má sleppa)
Toppur:
Hindber
1-2 tsk NOW erythriol
1. Stilla ofninn á 175 °C. Hakka möndlurnar í matvinnsluvél (eða nota möndlumjöl).Blanda öllu í botninn með höndunum. Þetta er sóðalegt verkefni. Þrýsta gumsinu í botninn á smelluformi og inn í ofn í 10-15 mínútur. Taka út og leyfa því að dunda sér á kantinum meðan fyllingin er útbúin.
2. Blanda öllu í fyllinguna saman með töfrasprota eða í blandara.
3. Hella fyllingunni ofan á botninn og henda í ofninn í 35 mínútur eða þar til hún er orðin þétt að ofan og prjónn sem er stungið í miðju kemur tandurhreinn upp. Hún má alveg hristast pínu. Leyfa kökunni að kólna aðeins áður en hún sameinast toppnum.
4. Örra hindber í 30-60 sekúndur með smá sætuefni þar til það er orðið að gumsi og smyrja svo yfir lufsuna.Henda henni svo í ísskáp í 1-2 tíma, eða yfir nótt…. ef þú getur beðið svo lengi.
Naglinn gat ekki beðið nema í klukkutíma *hóst* og slafraði öllu í sig samviskusamlega án þess að blikka auga.
Pingback: Súkkulaðikókos ostakaka – step by step | ragganagli